Þið þekkið flestöll Belle and Sebastian ? … þeir spiluðu á Bræðslunni hérna um árið og eru bara alveg frábærir. S.s. Stuart aðal forsprakkinn í Belle stofnaði God help the girl… sem svona project þar sem hann fær 2 stelpur og einn strák í lið við sig til að syngja lögin sín. Og shit fokk hvað þetta er besta hugmynd sem hann hefur fengið. God help the girl er god helping me sko ! Frábær rödd sem er gjörsamlega sköpuð fyrir lögin hans Stuart.
Svo kemur kannski pínu aðeins músík í þyngri kantinum.. en hinsvegar algjör snilld.
Hreyfst af Patrick Watson á airwaves 2007 minnir mig að það hafi verið. Hann á t.d. lagið the great escape.. sem er eitt það fallegasta lag sem ég veit um.
Hér er að vísu cover af laginu hans.. En þetta barn sem syngur er klárlega undrabarn.
Ný kaflaskipti .. massa ný.. alveg ný bók eiginlega. Maja and her foreign affairs
Eins og þið vitið hitti ég Jesper 26 des 2008.. bráðum fyrir 6 mánuðum. Svakalegt hvað tíminn líður hratt. Margt búið að gerast líka.. Jesper flutti út og við fluttum strax inn… ég var aldrei í vafa samt.. ó no.. never. Enda oftast þegar maður finnur að eitthvað er rétt.. þá er það rétt. Ég efaðist þó um önnur mál í DK ekki tengdu Jesper..en þau eru svosem alveg laus núna.
Ekki nóg með að hafa flutt í annað land í byrjun samband, flutt inn saman þá var ég líka að missa vinnuna.. (í lok maí). Það er auðvitað stórt mál í sjálfu sér en ég samt er ekki svo viss um að það sé hið versta mál. Ég er þó betur sett en margir aðrir.. Jesper í bullandi vinnu (já too much sko eiginlega stundum). Hann svooo duglegur þessi elska. Ég passa upp á að þrífa og elda á meðan. Er að verða massa góð í því. (fyrir utan nokkra stórmisheppnaða saltaða pulsurétti og ofurkókus pastaréttinn vonda)
Ég stefni þó hátt og læt atvinnumissin ekki á mig fá.. (enda er það ekki hægt að taka atvinnumissi persónulega árið 2009.. þetta er bara daglegt brauð)
Ég sefni það hátt að ég sótti um í skóla (sótti að vísu um smá seint en vonast þó eftir að komast inn). Ég hringdi einmitt í CBS um daginn og bara
Hey get ég ekki samt bara komið í viðtöl eða gert eitthvað extra til að komast alveg pottþétt inn ?
Hann: uhhhhhhhhhhhh .. nei það fúnkerar ekki alveg svoleiðis í Danmörku.. kannski Íslandi en ekki Danmörku. Þetta fer bara eftir hver sækir um fyrst.
Ég: æj kommon… ég er með massa hugmyndir sem ég verð bara að koma í framkvæd og CBS gæti orðið partur af successnum..
Hann: Hljómar vel.. en því miður vina mín.. (við erum bara svo fokkings búrokratísk hér í DK að svona eitthvað er ekkert hægt …. MÍN ORÐ)
Jæja ég held samt alveg að þetta sleppi og ég fljúgi inn í skólann (en ekki HVAÐ ?) Fæ oftast allt sem ég óska mér.
Óskaði mér einu sinni t.d. að eignast kærasta sem væri ekki frá Íslandi en talaði íslensku.. og look what i got ? Kærasta sem er útlenskur sem talar íslensku..og sem er bestur og skemmtilegastur.
Hann kenndi mér að spila golf, hann kenndi mér að umbera fólk og ekki æsa mig um of, hann kenndi mér líka að það er alveg okey og enginn glæpur að vera inni um helgar og slaka á. Já og síðast en ekki síst kenndi hann mér að fíla guitar hero (var mjög á móti guitar hero). Svo kenndi hann mér að elska og virða á réttan hátt. Mikilvægt það.
Þannig að ég er bara að massa það að vera atvinnulaus og láta mig dreyma um glæsta framtíð. En það er svosem ekkert allt æðislegt við það að missa vinnuna.. við þurfum td. að flytja annað og það í massa ghetto.. hlakka samt svoldið til. Ég ætla t.d. að byrja sjálf að ganga með slæðu til að fitta in.. fá mér brúnar linsur og fara í fokkings megrun. Hlakkar ykkur ekki til að heyra mega spennandi ghetto sögur úr Köben -Greifabænum ? Jee.
Það er svo margt sem ég hef að segja því jú síðast þegar ég bloggaði þá var janúar eða eitthvað álíka…. næstum last year.
Hey og eitt í lokin.. ógeððððslega fyndið. Jesper fannst nauðga og nudda vera sama orðið og svo bað hann mig að nauðga sér á laugardagskvöldið fyrir framan vinafólk okkar…. þau og ég bara EHHH okey RÓLEGUR . Ég hugsaði.. rosalega hefur þessi mohito svifið á hann hahahha. Hey þá meinti þessi elska hvort ég vildi nudda hann ..
Hey viltu nauðga mér í kvöld.. er svo illt í bakinu?
Hann nauðgaði mér við kertaljós í gær mega rómó !
Jesper getur alveg nauðgað þér. hann er rosalega góður að nauðga !
haha ekki það ég segi oft eitthvað sem misskilst svakalega á dönsku. Eins og ég sagði í mörg skiptir “Gud jeg fár krummede tár” (ætlaði að segja krumapaðar tær en sagði alltaf krumpuð tár) Jesper skyldi ekkert í því ekkert.. að alltaf þegar ég fór hjá mér eða fannst eitthvað asnalegt að þá fengi ég krumpuð tár..
Jæja að lokum: í atvinnuleysinu gildir einungis það sem skiptir mestu máli ! Ást, virðing og gott samband við fjölskyldu og vini… RÆKTA RÆKTA RÆKTA garðinn.
Ps. við útlenska parið mætum til landsins 24 júl og verðum til 11 ágúst
Airy Gemini and watery Cancer can meet to create one of those wonderfully creative landscapes of sea and sky. Gemini is flexible and open-minded, and can introduce Cancer to many different world-views, ideas, and contacts. Cancer is affectionate and sensitive, and can show Gemini the delights of a stable domestic life.
But beware of the demon of jealousy and its inevitable accompaniment, the demon of escapism. Cancer can easily feel rejected by Gemini’s interest in others and coolness in emotional matters. Therefore, the Cancerian can resort to emotional manipulation to get the necessary reassurance.
Gemini can easily feel invaded by Cancer’s need for emotional reassurance and lack of directness, and can resort to evasiveness to get the necessary space and distance.
Try not to polarise between mind and feelings. You both have lively, curious minds which need stimulation, but you both also need warmth, affection, and loyalty.
Don’t project your own unconscious needs on each other. Cancer needs to give Gemini lots of freedom of movement, and Gemini needs to respond sensitively to Cancer’s emotional requests.
Ég var svo heppin að hún Þórey hot mama með meiru kom til mín í heimsókn. Þetta er í annað skipti sem þessi flipp prinsessa mætir til Danaveldis í þeim tilgangi að heimsækja Majuna ! DJö var ég fegin að sjá hana á flugvellinum í gær.. langaði helst að kirkja hana úr gleði ! Hún tók samt góðan tíma í að bíða eftir töskunum.. var næstum búin að kalla á security og allt.. hahah. Svo loks kom hún og talaði íslensku við alla danina sem hún sá.. mjög gaman. Það má segja að Þórey hafi beinlínis tapað sér í gleðinni þarna þegar hún var lent og um leið og við komum í metróinn spurðu hún strax hvort langt væri í leikfangabúðir (ekki fyrir Rökkva nota bene).
Við fengum okkur svo nokkra dansk pilsner (já ódýrasti bjórinn í DK.. frá Fakta). Við slúðruðum hlógum og rifjuðum upp ferðina góðu þegar Þórey kom síðast. Hér koma nokkur brot :
“Við nýkomnar til Þýskalands .. Flensburg … á leiðinni til Flensburg stoppuðum við í þýskri dónabúð og María keypti sér e-a rosalega tampons sem voru eflaust úr framtíðinni … næstu 10 km þurfti ég að lesa leiðbeiningarnar um þessa undratúrtappa (sem litu út eins og meiksvampur) á þýsku … það var mjög svo fræðandi ..ég keypti mér 2 kveikjara með typpum á …. fylgdu engar leiðbeiningar með þeim …. kallaði Mæju Sponge Bob/Svamp Sveinsson eftir þetta ….”
þess má geta að ég notaði þessa túrtappa aldrei.. þetta var það furðulegasta sem ég hef séð.. svona svampur sem maður skolar svo bara eftir notkun ÓGEÐ ! ó nó
“já einn leigubílstjórinn kunni ekki að meta sönghæfileika mína og hótaði að henda mér út ef ég mundi ekki þegja … er það nú þröngsýni! Sumir kunna bara ekki gott að meta!”
HAHAHHAH omg hún spurði líka leigubílstjórann í gær hvort hann ætti pizzu í bílnum.. Hún að vísu lét það alveg eiga sig að syngja (svosem fínt bara… gott að gera það bara í private)
Hér má sjá agalega fallega skó sem við fundum í stjarnfræðilega hallærislegu Flensborg (mynd tekin í des 2008 sko)
Man hvað Þórey hataði þetta hálsmen.. hún hótaði að henda því allan tímann sem ég var með það.. greyið ég.. Heyrðu hvar er það btw ? Þórey.. hmmmmmmmm ég gruna þig sterklega !!
“Mæja keypti sér einnig mittisleðurjakka … já ekki síðan leddara .. var mjög svo 6y í honum reyndar … annað en með ugluhálsmenið !”
HAHAHHAH síðir leddarar fokk maður.. Hver gengur í svoleiðis ?
hahah ohhh hvað var gaman og verður gaman um helgina !
“loks komu svo tveir galvaskir strákar og buðu okkur Mæjunni upp á skot! Mæju fannst annar þeirra vera reyna við mig og efitr að hafa spurt hann um aldur sagði hún ” þórey hann er nokkrum árum eldri en Rökkvi !” Djí hvers þarf Rökkvi greiið að gjalda að vera blandað inn í þetta sheissssse ! Hann var nú alveg 17 ára ! God ef maður er ekki orðinn gamall þegar manneskja 10 árum yngri en maður sjálfur er farinn að reyna við mann þá veit ég nú ekki hvað ! Sheisse!”
Djö elska ég þessa flipp prinsessu ! Hún er best.. hvað er samt málið með okkur og brjóstaskorur ? Greinilegt að ég var á lausu þarna hahhaha læt ekki sjá mig í svona núna :p
Djö elska ég lífið mitt… á yndislegan kærasta og ógeðslega fabolous vinkonur ! Fokk it og skál !!!!
Ég vildi bara aðeins láta ykkur vita af mér. Lífið hér í Köben er betra en gott.. kannski af því ég er ástfangin ? Jú það held ég nú bara. Ég er bara að upplifa svo ótrúlega frábæra hluti að ég vildi óska þess að öllum myndi líða eins.. þá væri heimurinn einfaldlega betri.
Alltaf þegar ég fer á fætur á morgnanna er tilbúið kaffi, heit rúnstykki og fleira gotterí…..þegar ég fer svo í vinnu þá hlakkar mig strax til að koma aftur heim.
Þegar ég svo kem heim á kvöldin eftir langan vinnudag bíður þessi elska eftir mér með matinn ready (geggjaður kokkur) og svo er hvert kvöld alveg einstakt. Ohhhhh þetta er svo yndislegt. Elska í tætlur !
Mamma og vinkonur hennar komu svo um helgina síðustu til Köbe í töse ferð… þær komu til okkar á laugardaginn og Jesper ákvað að elda handa þeim gellum mat (heheh hann vissi ekkert hvað hann væri að fara útí). Hann gerði mega gott smörrebrauð og meðlæti…mmmmm gráðugu gellurnar (saumaklúbburinn heitir það) voru sko sáttar þegar þær fóru svo aftur heim til Íslands.
Það er nú bara ekki hægt að hugsa sér betra líf. Gagnkvæm virðing, ást og umhyggja… !!! Svona á þetta að vera. Við höfum líka verið voða dugleg að gera allskonar hluti eftir að við fluttum út. Förum í endalausa göngutúra og við erum örugglega mest óþolandi par í heimi… greyið þau í Rema um daginn…. Ég er nú ekki sú duglegasta að nenna í göngutúra en með honum nenni ég ÖLLU.. alveg magnað. Ég borða samt of mikið.. ég fæ bara ekki nóg.. fæ ekki nóg af lífinu og vill upplifa 5000000 klukkutíma á dag með honum í stað 24.
Við erum á leið á fótboltaleik á fimmtudaginn.. FCK-Man city… eða united man ekki alveg.. allavega fóbó leik.. aldrei hefði ég nennt svona áður.. en allt fyrir ástina !!!!!! (úff væmna maja sheizze)
Hann myndi líka fara með mér á He’s just not that into you t.d. og fara með mér í fatarbúðir og sýnt áhuga (eða allavega þóst sýna áhuga á réttan hátt).. svona á þetta að vera.
Næstu helgi eru svo systir hans, kærastinn hennar og babý-ið þeirra að koma í heimsókn til okkar.. íkt gaman
ps.. mæli með því að vakna klukkutíma fyrr á morgnanna. Fá sér kaffi, horfa á fréttir og spila svo einn leik Buzz.. ekkert jafn hressandi. Við spilum endalaust !
Hér koma svo nokkrar myndir.. :
Ég alltaf hjólandi to work.. alltaf að frjósa !
Það er thai massage stöð beint fyrir neðan íbúðina okkar.. Mjög huggulegt. Þarna eru þær að gefa heimilislausum að borða.. nema hvað..þær vitlausar.. halda þær að það séu heimilislausir í ríkustu kommununni í Köben.. sjálfu Fredriksberg ? iss ga ga !
Elska húsið okkar og hverfið………fyrir þau sem þekkja Klovn þættina.. þá eru þeir flestir teknir upp í Fredriksberg ! Vú hú ég borðaði líka við hliðina á Önnu Pihl um daginn.. íkt gaman.. hún er hræðilega sæt !
Not more for now………hey jú við komum um páskana.. ! Je
www.flickr.com/photos/mariamey fleiri myndir her !!!!!!!!! updeitad oft!
Á tali við góða vinkonu mína fyrir ekki svo löngu og við fórum að skiptast á lögum. Tala um gamla tíma og ég einhvernveginn fékk svo sterkan sting í hjartað…….virkilega góðan. Ég áttaði mig á því hvað ég á virkilega góða að.
Þessi vinkona mín var smá niðurdregin….felling blue eins og maður gæti sagt…. en bara með smá spjalli og eftir nokkrar spilanir á lögum eins og “I’ve been loving you too long (to stop now)” Með Cat Power og “Let it be me” með Ray Lamontagne þá leið henni betur. Þetta gladdi hjartað mitt litla alveg ósköp mikið. Stundum eru einföldu hlutirnir einfaldlega þeir bestu! Simple but true!
Fyrst langar mig að spila fyrir ykkur lagið “I’ve been loving you too long (to stop now). Cat Power tekur það en upprunalega útgáfan er með Otis Redding.. ó svo fallegt !
Textabrot:
Don’t make me stop now
No baby
I’m down on my knees Please, don’t make me stop now
I love you, I love you,
I love you with all of my heart
And I can’t stop now
Don’t make me stop now
Please, please don’t make me stop now
Good god almighty I love you
I love you, I love you, I love you
I love you, I love you
I love you in so many different ways…
I love you in so many different ways….
og svo:
Textabrot:
There may come a time,
you just can’t seem to find your place
for every door you walk on to,
seems like they get slammed in your face
that’s when you need someone,
someone that you can call.
and when all your faith is gone
feels like you can’t go on
let it be me
let it be me
if it’s a friend that you need
let it be me
let it be me
Þú veist hver þú ert.. og þú veist þú getur sko ALLTAF talað við mig no matter when !
Hér kemur svo þetta fína lag með vini mínum Ray Lamontagne:
Að sjálfsögðu koma erfiðir tímar og þá er mikilvægt að muna hvað skiptir mestu máli og hversu góður grunnurinn sé svo heil bygging fari ekki að brotna niður í huganum. Ef grunnurinn er góður.. þá er alltaf hægt að byggja ennþá meira og stækka og þroskast.
Við tókum svo annað lag og hlustuðum á saman. Lag sem heitir The Treehouse Song með Ane Brun
Textabrot:
I was gonna love you till the end of all daytime
and I was gonna keep all our secret signs and our lullabies
I was made to believe that our love would grow old
we were gonna live in a treehouse and make babies
and we were gonna bury our ex-lovers and their ghosts
baby we were made of gold.
Svo töluðum við aðeins meira og okkur leið vel. Þó svo langt væri á milli okkar í kílómetrum fann ég að hjartað okkar slóg í takt
Baby you’ve got a friend in me!
Heyrðu og svo… eftir spjallið okkar góða… kemur ein úr vinnunni upp með stærsta og fallegasta rósavönd sem ég hef nokkur tíma séð. Ég kiknaði í hnjánum.. fékk fiðrildin í maganum mínum til að fljúga extra hring og fékk smá gleðitár í augun.
Þessi blóm komu akkurat 1 mánuði eftir að ég og Jesper byrjuðum að vera saman. Ég hugsaði.. guð þetta getur varla verið til mín.. maður kannski ekki alveg vanur svona.. en jú á kortinu stóð nafnið mitt.
Ég stóð upp tók á móti þeim og hugsaði.. ég er heppnust í heimi. Ég á yndislegan kærasta sem elskar mig og virðir !
Ég upplifði svo skringilegt moment…….hef aldrei upplifað svona stund áður. Gleðileg var hún !
Ég átti að hjóla svo heim með fína blómvöndin en ég man eiginlega ekkert eftir hjóltúrnum.. held svei mér þá að ég hafi bara svifið alla leið heim með fallega blómvöndinn minn.
Eins og þið flest vitið ábyggilega er ég ástfangin…….ástin mín kemur á föstudaginn næstkomandi. Það verður himneskt. Loksins. Vil aldrei aftur vera svona lengi í burtu frá honum.. það verða orðnir 21 dagur þegar hann loks kemur (geri mér grein fyrir því að það er ekki langur tími……..en það virðist bara vera mörg ár)
Nýttt land, nýtt samband, nýtt upphaf………..!
Lífið leikur við mig. Vona svo innilega að þið hafið það jafn gott og ég. Ég trúi því núna að góðir hlutir gerist fyrir gott fólk !
Ég ætla að enda á laginu: Don’t let me down með Bítlunum.
Textabrot:
I’m in love for the first time
Don’t you know it’s gonna last
It’s a love that lasts forever
It’s a love that has no past
Litla sveitastelpan flutt út. Bíður eftir kærastanum spennt…Hann kemur þann 30 jan.. ó það verður dejligt !
Við erum semsagt komin með íbúð í Fredriksberg C. Danasvej 39. Mjög mikil snilld. Tekur mig bara 5 mín að hjóla í vinnuna.
Ég kom út þann 8 jan og byrjaði að vinna strax eftir hádegi… mikið að gera.. mikið af breytingu og virkilega krefjandi. Ég verð að segja að mér líkar þetta vel.. en sakna þó Iceland Express alveg hellings helling ! Frábær vinnustaður í alla staði!
Jæja hvað um það… ég var búin að vera í 2 daga í Köben þegar ég var búin með 4 kebabba, 3 fransk hot dog og nokkra carlsberg… fékk svo nóg..hef ekki fengið mér kebabb síðan… jæja svo þegar ég ætla inn í tyrkjasjoppu að kaupa mér smá nammi þá gerist þetta :
Hann: “Ætlar þú ekekrt að fara að ákveða þig og kaupa”
Var búin að vera í 1,5 mín þarna
Ég: “Bíddu þarf ég eitthvað að flýta mér ? ”
Hann: “Já ég er að bíða eftir að þú kaupir, stend hérna við kassann og bíð.. drífðu þig !!!!”
ég:” Já bíddu er það ekki þinn staður eða ertu ekki að vinna hér ? ”
Hann argar
Ég : “Sá köber jeg fandme ikke slik fra dig din idiot”
Hann : “BYE BYE”
er ekki í fokking lagi? Greyið ég.. hvers þarf ég að gjalda.. nýkomin til Köben sniff sniff.
Updeit: ég lenti líka í því í gær að ég var skömmuð fyrir að hjóla á gangstétt þó ég væri bara rétt að hjóla 2 metra.. gamall nöldurkall (vá hvað finnst endalaust af þeim hérna) fussaði yfir því og sagði helvítis Svíi við mig.. hálfviti !
ótrúlegt.. úff en vinnan kallar.. verð að fara að vinna.. tala við ykkur seinna